Stebbi Segir: Borðið Skyr!

Sælt veri fólkið, smá öppdeit.
Vegna langvarandi slappleika þá dreif ég mig loksins til læknis á mánudaginn til að tékka það helsta. Blóðþrýstingur reyndist vera í lagi, hjartað og æðakerfið sömuleiðis en eitthvað fannst honum kreatínmagnið vera í hærra lagi. Kreatín hefur eitthvað að gera með starfsemi nýrnanna og því sendi hann mig niðrá röntgendeild daginn eftir til að láta ómskoða í mér nýrun.
Það var frekar fönký reynsla, læknirinn fór með skannann yfir mig aftur og aftur og aftur eins og ég væri hveitipoki með beyglað strikamerki í Bónus. Hann sagðist sjá eitthvað sem að gæti mögulega verið steinn (Kidney Stones!) eða einhvers konar blaðra (!) og á næstu dögum fæ ég að vita nánar um hvað er að ræða. Ég hef svo sem litlar áhyggjur af þessu, ég trúi á mátt læknavísindanna (svo tilheyri ég líka íslensku læknamafíunni).
Í öðrum fréttum er það helst að Bragi og Kristjana eru að flytja á morgun og þá skal tekið til hendinni og hjálpað til. Ég vona bara að eins og venjulega sé bjór á endanum. Glaumgosarnir í Hraun eru svo að spila á Nellýs í kvöld og hvet ég alla til að mæta, það kostar ekkert inn og þeir eru betri en Írafár.
Undanfarna daga hef ég svo rölt um með myndavél föður míns og skjalfest þetta undarlega veðurfar (snjór? í nóvember??) og sett inn á myndasafnið. Njótið vel.
PS: Djöfull er það notaleg og skemmtileg tilfinning að taka hljómplötur úr umslögunum og setja þær á fóninn, setja nálina svo gætilega á og stilla bassann, treblið og volumið. Halla sér síðan aftur í sófann og hlusta á Roger Whittaker syngja um a New World In The Morning.
Posted by Stebbi at 27.11.03 12:43Ég lofa bjór!!!
Kristjana skrifaði 28 nóvember 2003, kl. 14:13Eg skodadi allar snjomyndirnar thinar og eg verd ad segja ad thu ert rosalega godur ljosmyndari!! Thad er alveg frabaert hvernig thu naerd birtunni og smaatridum og skemmtilegum sjonarhornum. Thu ert listamadur, Stebbi.
Olof skrifaði 29 nóvember 2003, kl. 05:44