Samtal milli Svavars og Stefáns í gær
Svavar: Voðalega ertu duglegur að taka strætó Stebbi minn, ég dáist að þér.
Stebbi: Iss, þetta er ekkert mál. Maður þarf ekkert að eiga bíl í svona smáplássi eins og Reykjavík. Gott reiðhjól og Græna Kortið, meira bið ég ekki um.
Svavar: Þú ert sönn hetja!
Stebbi: Satt er það, satt er það.
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Daginn eftir fær Stefán hringingu frá viðgerðamanni sem ætlar að kíkja í heimsókn til hans á Tryggvagötuna til að reyna að lækna fárveikan bakaraofn.
Viðgerðamaður: Sæll Stefán, ég verð kominn eftir ca. hálftíma.
Stefán: Ekki málið, ég næ Tvistinum eftir 5 mín og er kominn heim eftir 15 mín.
Stefán hleypur út í strætó, það er kalt. Reykjavík er svo sannarlega borgin þar sem sólin brennur kalt og vindurinn blæs kaldar. Stefán kemur sér makindarlega fyrir í sætinu og dottar aðeins. Hann vaknar þó snögglega við hóst og hökt í vél strætisvagnsins. Vagninn hefur numið staðar á Lækjartorgi og vagnstjórinn tilkynnir farþegum að vegna bilunar muni þessi vagn ekki fara lengra. Stefán lítur í ofboði á klukkuna og þýtur út úr vagninum.
Vindurinn blæs ofurköldu framan í veslings Stebba þar sem hann hleypur í ofboði eftir Tryggvagötunni, hafandi heyrt tröllasögur af viðgerðamönnum sem gefa engin grið hvað varðar stundvísi. Heppnin er þó með honum og viðgerðamaðurinn bíður rólegur úti í frostinu og hálftíma seinna er Stebbi kominn með fúnkerandi ofn og helluborð.
Bíll Smíll.
Posted by Stebbi at 14.01.04 13:47Ég er nú ekki alveg sjúr á því að samræður okkar hafi farið svona fram...
Svona heyrði ég þetta:
Stebbi: ÖHÖHÖHÖhöhöhö... ég er svo mikill aumingi, ég kann ekki að keyra bíl, því ég klessi þá alltaf í klessu... öhmöööööhmöööö...
Svabbi: Svona svona, þú ert ekkert ömurlegur...
Stebbi: Ömurlegur? Hvað meinarðu Ömurlegur? Hver sagði þér það!?!? ég drep hann!!! ég drep þig!!!
Svabbi: Rólegur... Rólegur...
Stebbi: Ég er rólegur... rólegur... gooosfraabaaahhh...
Svabbi: Eru strætó virkilega svona ömurlegir?
Stebbi: GAAAAAAAA!!!!
Eða kannski var þetta hinsegin...
Hr. Svavar skrifaði 14 janúar 2004, kl. 19:44Feel your pain my friend, allavega hvad kuldann vardar.. Eg sit herna inni med hroll nidureftir bakinu eftir utiveru i 20 stiga frosti, an grins! Eg helt ad svona lagad fyrirfinndist ekki i sidmenntudum londum, fuss og svei. En varstu anaegdur med dagatalid? Eg lofa ad skila ther bokunum um leid og eg finn thaer ofani kossunum hja mer, promise!
Olof skrifaði 14 janúar 2004, kl. 19:48