Nýtt ár hefur silast inn, hægt og rólega. Bráðum mun maður jafnvel muna eftir að skrifa 2004 í staðinn fyrir 2003. Ég er ekki alveg sáttur við mánuðina janúar og febrúar (þið verðið að fyrirgefa mér. þið eðla fólk sem eigið afmæli í þessum mánuðum). Þetta eru dimmir, votir, kaldir og leiðinlegir mánuðir sem að mætti skipta út fyrir skemmtilegri mánuði.
Í fréttum er það helst að bakarofninn minn (sem og helluborð) eru óvirk/ónýt eftir eldunarævintýri á laugardagskvöld. Ég og Elín Soffía ákváðum að elda okkur pasta bolognese (hakk og spaghetti fyrir ósnobbaða) og keyptum inn í 10-11. Þegar við komum til baka var kynt undir spaghettíinu, hakk sett á pönnuna og kveikt á ofni til að hita hvítlauksbrauðið.
Þá dró nú til tíðinda þegar öllu rafmagninu sló út. Við komumst snögglega að því að það var eldavélin sem að var að slá öllu út og því þurftum við að taka hana úr sambandi, helluborðið er samtengt þannig að það er úr action líka. Eftir að hafa velt fyrir okkur valkostunum varð okkur úr það snjallræði að hringja á Hróa Hött og láta senda okkur hamborgara með frönskum. Húrra fyrir skyndilausnum!
Núna er ég semsagt keyrandi á örbylgumatreiðslu. Luma einhverjir á uppskriftum handa Stebba?
Posted by Stebbi at 12.01.04 14:03Paul Newman!
1944!
og aðrir tv-dinnerar!
Gummi Jóh skrifaði 12 janúar 2004, kl. 14:42Það er hægt að sjóða hrísgrjón í örbylgjuofni - setur bara einn bolla af hrísgrjónum í skál og 2 bolla af vatni - setur léttan plastdisk eða plastfilmu með smá götum yfir - og í örbylgjun á ca. 800 gráður í fimm mínútur. Minnkar svo hitann niður í 450 gráður og stillir á 18 mínútur og þau eru tilbúin. Ég veit hins vegar ekki hvað þú getur borið fram með þeim. Ristað brauð?
Ásta skrifaði 12 janúar 2004, kl. 15:10Má ekki bjóða þér í mat í vikunni? :)
Svabbi