Merkilegt hvað skapið getur verið árstíðabundið, ég hef verið ansi þungur í brún núna yfir mesta skammdegið (eins og svo margir aðrir grunar mig) en með hækkandi sól og blómum í heiði virðist brúnin aðeins lyftast. Ekki svo að það sé neitt vor á næsta leyti, ég er nú ekki svo bjartsýnn 20. janúar. En eitthvað hefur hann bráðnað snjórinn og kannski getur Stebbi farið að hjóla aftur.
Sem þýðir að ég þarf að fara að finna ferðageisla/mp3spilarann minn. Mikið hef ég leitað í íbúðinni og er farið að gruna að hann gæti legið á glámbekk einhvers staðar í kunningjahúsum. Lesendur eru vinsamlegast beðnir að hafa auga með sér og athuga hvort að í húsakynnum þeirra leynist Lenco ferðageislaspilari, veðraður og lítill í sér.
Annars er það að frétta að Auður systir mín er að fara að flytja að heiman, orðin tæplega 22 ára, blessað barnið. About goddamn time.
PS: Hvar getur maður keypt sér glámbekk?
Held hann sé hjá má? getur það ekki verið? eitthvað svona var í óskilum eftir innflutningspartíið hans....
Unnur skrifaði 20 janúar 2004, kl. 20:49