janúar 15, 2004

Til að halda upp á

Til að halda upp á endurkomu eldavélarinnar eldaði ég grænt karrý og bakaði skúffuköku í gær. Elín, Bragi og Jósi snæddu kvöldmat með mér og saman horfðum við á verstu mynd sem ég hef séð í ár. Seinna um kvöldið fórum við Jósi og Bragi á Nellý's þar sem að Hraun! spilaði. Svavar og strákarnir hyggja á vesturför (Flateyri & Ísafjörður) í enda mánaðarins og svei mér þá ef að ég er ekki að spá í að slást í för með þeim. Verður alla vega gaman að keyra þetta. Er ekki annars góð spá? :p

Posted by Stebbi at 15.01.04 12:23
Comments

Fyrst þú minnist á slæmar kvikmyndir,
því ekki þá að taka þátt í kvikmyndagetrauninni minni
og reyna að vinna verstu mynd allra tíma á DVD ;)

Geiri3D skrifaði 15 janúar 2004, kl. 14:55

Post a comment









Remember personal info?