febrúar 01, 2004

Eins árs búseta

Í dag er liðið nákvæmlega eitt ár frá því að ég fékk afhenta lyklana að íbúð 510 á Tryggvagötu 4, 101 Reykjavík og hóf búsetu á fimmtu hæðinni. Það er ekki ofsögum satt að tíminn líður hratt, á gervihnattaöld sem og öðrum öldum, mér finnst við hafa flutt draslið inn í gær.

Hérna fyrir neðan er svo eftirprentun af fyrstu bloggfærslunni eftir flutningana miklu af Norðurstíg 3a yfir á Tryggvagötuna.

Flutningar, óboðinn gestur og fyrsta nóttin.

Jæja, þá er maður loksins kominn í nýju íbúðina. Eins og fyrr var greint frá fékk ég lyklana að Tryggvagötu 4, fimmtu hæð, íbúð 510, snemma á
laugardagsmorgni. Flutningar hófust þó ekki fyrr en klukkan rúmlega sex og þrátt fyrir borubrattar yfirlýsingar um að allt draslið yrði selflutt án einhvers flutningabíls, lét dugnaðurinn í lægri kanti fyrir letinni og ég hringdi á bíl. Ég, Jósi og Högni drösluðum búslóðinni í bílinn og svo var rúntað þessa ca. 100 metra niður á Tryggvagötuna. Þar bættust í hópinn Siggi Palli, Dóra, Jón Geir og Nanna. Allt í allt tóku flutningarnir rúman klukkutíma og þykir mér það bara hinn besti árangur þegar tekið er í reikning lyftuleysi og fimm hæða klifur.

Mental note to self: Þvottavél upp fimm hæðir = Ekki skemmtileg reynsla.

Eftir erfiðið var boðið upp á bjór og pizzu og skemmtikerfi heimilisins (Sjónvarp+DVDspilari) sett upp. Við sátum fram eftir kvöldi, sötruðum bjór og átum pizzur og horfðum á hina stórgóðu kvikmynd Godspell á DVD. Þessi eðalræma er byggð á samnefndum söngleik sem var samtímaverk Jesus Christ Superstar og fjallar um mikið af sömu atburðum. Munurinn er sá að Superstar er kaldhæðið stykki sem lítur síðustu daga Krists að mestu frá sjónarhóli Júdasar en Godspell er meira eins og samblanda af Matteusarguðspjalli og Stundinni okkar, leikið af hippum sem hafa fengið borgað í sýru. Samt, fín tónlist og einstaklega flott kvikmyndataka.

Þegar leið á kvöldið ákvað ég að taka inn nokkra kassa sem höfðu verið skildir eftir fram á stigagangi. Sem að ég var að teygja mig í einn kassann sá ég mann liggjandi á stigapallinum. Mér flaug fyrst í hug að þarna væri íbúi annar hvorrar íbúðarinnar sem ég deili fimmtu hæðinni með, læstur úti en svo reyndist ekki vera. Maðurinn svaf þungum svefni í fósturstellingunni með leðurjakka dreginn yfir höfuðið. Við stjökuðum aðeins við honum og kom þá í ljós blóðugt andlit og spurði kauði hvers vegna við værum að vekja hann. Við ákváðum að leyfa honum að lúlla og hringja á meðan á lögregluna. Ég bjallaði á Reykjavík’s finest og eftir dúk og disk birtust þrír laganna verðir og kom þá í ljós að gaurinn var svokallaður góðkunningi lögreglunnar og urðu með þeim fagnaðarfundir. Gesturinn var leiddur á brott og hefur vonandi fengið gistingu á þægilegri stað en hörðu gólfinnu á fimmtu hæð Tryggvagötu 4.

Eftir að síðasta flutningafólkið var haldið á brott tók ég upp úr nokkrum kössum í viðbót og setti lak á rúmið, breiddi ofan á Elínu Soffíu sem svaf í sófanum (hún á náttúrulega báða sófana, svo henni er frjálst að nýta sér aðstöðuna) og hélt í háttinn. Sem ég lagðist til svefns sá ég nokkuð sem fullkomnaði frábærlegheit þessarar íbúðar. Á svörtum himni sá ég stjörnur. Blikandi stjörnur á svörtu satíni. Eftir að hafa hýrst á Norðurstígnum í tæplega 2 ár var ég búinn að gleyma þessum fyrirbærum en nú hef ég endurheimt þau. Guð blessi manninn sem fann upp efstu hæðina.

Posted by Stebbi at 01.02.04 14:57
Comments

Þú gast líka sagt "Smellið hér"

Jósi skrifaði 1 febrúar 2004, kl. 20:30

Til hamingju með eins árs búsetuammlið Stebbið mitt:) Ég skil samt ekki hvernig þú gast flutt af Norðurstíg 3a, ég elska staðinn í haug, sannast með þolinmæði minni í garð dópista og annars óþjóðalíðs sem dúkkaði upp á tímabili:)

hrafnhildur aka krummi skrifaði 1 febrúar 2004, kl. 23:38

Hey, ég elskaði Norðurstíginn svo mikið að ég bjó í helmingi íbúðanna þar. En svo kom Tryggvagatan og heillaði mig upp úr skónum ;)

Stebbi skrifaði 2 febrúar 2004, kl. 19:21


acne best care product skin

Lesið meira hér. best acne skin care, 26 desember 2006, kl. 17:32


no deposit casino

Lesið meira hér. casino bonus no deposit, 31 desember 2006, kl. 12:44


generic soma online

Lesið meira hér. cheapest generic soma, 1 janúar 2007, kl. 13:17


replica and rolex

Lesið meira hér. replica rolex cheap, 6 mars 2007, kl. 03:25

Post a comment









Remember personal info?