mars 26, 2004

"By the prickling of my thumbs, a drunken Greenlander this way comes.."

Sem að ég var á leið heim frá Ellefunni þar sem Hraun! höfðu verið að spila (til hamingju með Heaven On Their Minds strákar, þetta er allt að koma) rek ég auga á mannveru sem nálgast mig hjá Kolaportinu. Náunginn veifaði eitthvað svo að ég steig af hjólinu og hváði.

Þetta var Grænlendingur, tannlaus, eymdarlegur og ansi drukkinn. Hann var líka týndur í þokkabót. Mannkertið umlaði eitthvað sem hljómaði eins og: "Hofnaddda" og "Hofnafaaadd" og eftir nokkur uml komst ég að því að hann var að leita að Hafnarfirði. Ég benti í suður og kvað Fjörðinn vera í ca. 10 km fjarlægð. Þá fór Grænlendingurinn svo gott sem að gráta og sleftaumurinn úr vinstra munnviki blakti í golunni. Ég benti honum til leigubíls og hóf aftur heimferð en hann greip í ermina mína og grátbað mig um að hjálpa sér að finna skipið sitt, sem að hét eitthvað eins og "Neddanna".

Ég leiddi svo að lokum veslings manninn upp að Gauk á Stöng þar sem laus leigubíll beið einmitt fyrir utan. Ég fullvissaði mig um að kallinn ætti fyrir bílnum (enda virtist bílstjórinn ekkert vera of hress með þennan farþega) og kvaddi svo Grænlendinginn nafnlausa.

Posted by Stebbi at 26.03.04 12:46
Comments

Stefan. Thu er miskunnsami Samverjinn holdi klaeddur! Eg myndi taka ofan fyrir ther ef eg vaeri med hatt..

Olof skrifaði 26 mars 2004, kl. 19:53

Hnnnnadd....uh.h....hufffffffffffff......drrr.....taxa.........dnhnhf....drrr...takkkkkkkkkkk.

Drukkni Grænlendingurinn skrifaði 26 mars 2004, kl. 22:15

Nei, bara drukkni Grænlendingurinn mættur í eigin persónu :)

Stebbi skrifaði 27 mars 2004, kl. 12:16

HAHAHAHAHAHAHAHAHA!

Lilja skrifaði 30 mars 2004, kl. 13:15

LOL

Zato skrifaði 30 mars 2004, kl. 14:00

Good Point. Anyways, this was where i met her. You can join for free as well www.redtricircle.com

click here skrifaði 14 mars 2005, kl. 15:00

Omg thats right! Please come see me and my friends! ;)

watch moi skrifaði 19 mars 2005, kl. 11:11

Come see me if you dare! Check me out on the w ebca m!

free webcams skrifaði 12 apríl 2005, kl. 13:07

Post a comment









Remember personal info?