mars 20, 2004

Tilhlökkun x 1000000

Ó mig hlakkar svo til, Jónsi er að fara að frumflytja Júróvisjonlagið hjá Gísla Marteini!!

*edit 5 mínútum seinna*

Og það var bara allt í lagi, soldið líkt norska laginu í fyrra. Jónsi stendur sig bara ágætlega, lagið er powerballaða dauðans, soldið eins og Richard Marx og Peter Cetera hefðu samið lag saman og látið Enrique Iglesias syngja það á englaryki (Jónsi urrar dáldið á köflum).

Posted by Stebbi at 20.03.04 20:29
Comments

Djö ég missti af því... ætla að gá hvort ég finni það á netinu. Ætti kannski að sleppa því, lifa í voninni um að þetta sé í rauninni alltílagi lag (bara aðeins lengur)...

Kristjana skrifaði 21 mars 2004, kl. 00:05

Alveg prýðis Möltuballaða...

Hallur skrifaði 21 mars 2004, kl. 01:28

Stebbi..... 'þig' hlakkar svo til?

Nú er ég hneyksluð.....

icelily skrifaði 21 mars 2004, kl. 02:08

Jebb, það stemmir. "Mig" hlakkar til í fótinum eins og Elías sagði hér forðum. Var að fá of lítið af kommentum inn á síðuna og datt í hug að slæm málfræði gæti glætt áhuga fólks. Jæja, sjáumstum öll, ég er að fara til læknirinnsins.

Stebbi skrifaði 21 mars 2004, kl. 13:11

Læknirir!! Læknirir!! :Þ

icelily skrifaði 22 mars 2004, kl. 08:40

Post a comment









Remember personal info?