Orðinn 28 ára gamall og aldrei lent í "hremmingum"?
Þetta byrjar allt með bústaðarferð. Ég, Svavar og Gústi tókum okkkur til á laugardaginn og kíktum upp í bústað til Jósa en þar var hann ásamt Geira-3D og Helgu kærustu hans. Um kvöldið var grillað og haft það notalegt, pottur, bjór og rauðvín og næs. Daginn eftir kíktum ég, Jósi, Svabbi og Gústi í bíl/göngutúr, ætluðum að reyna að skoða Surtshelli en það reyndist ófært.
Þegar við komum til baka voru Geiri og Helga þegar farinn svo að Gústi og Svabbi kvöddu líka, og ég og Jósi tókum til við að þrífa bústaðinn. Um hálfsjöleytið var allt komið í stand svo að við settumst upp í jeppann og lögðum af stað. Á leiðinni stakk Jósi upp á því að fara Kaldadalsleiðina og ég jánkaði því, vitandi að Jósi hefur gaman að jeppast (ég er svona meiri lestarkall en jeppakall). Við beygðum inn á afleggjarann og héldum sem leið lá upp á hálendið. Leiðin var dáldið röff en samt ekkert sem að jeppinn réð ekki við, en svo dró til tíðinda......meira má svo lesa í kvæðinu Stebbi & Jósi: Háski Á Hálendinu (Með 9 litmyndum!!)
Ferðin heim úr bústaðnum
var full til bein og alltof greið
svo Jósi brosti út í eitt
og sagði: "Hér er betri leið"
Kaldidalur Jósa kallar
jeppagaurar standast ei
engin sála hér á ferli
ekki einu sinni rollugrey
>
En þar sem Jósi kampakátur
jeppann stóra sat og ók
allt í einu, upp úr þurru
tryllitækið niður tók
Fram og aftur, upp og niður
reyndi Jósi sér að þoka
en allt kom fyrir ekkert og
út þeir fóru tveir að moka
Engin skófla, bara hamar
skrúfjárn og smá svo fleira dót
er það nokkur furða að
gröfturinn gekk ekki hót
En fljótt á brast nú myrkur mikið
veður vont og ískallt regn
sátu vinir inn í jeppa
dauðþreyttir og blautir í gegn
Í myrkri mælir varla sála
þreyttir vinir sitja inni
úldnir, kaldir hlusta á
Illuga á Langbylgjunni (Ríkisútvarpið= LW 189)
En morgundagur lukku færði
jeppinn laus og allt í sól
héldu hólpnir vinir heim
hvor í eigið hlýja ból
Móral ævintýri þetta
ber sem ber að hlusta á
hafið ætíð skóflu reiða
ef grípur ykkur fjallaþrá
(og takið mark á skiltum sem gefa í skyn að vegur sé lokaður)
Posted by Stebbi at 12.04.04 19:24úff....þetta hefur verið hörku ferð
Þóra Marteins skrifaði 12 apríl 2004, kl. 19:37Eigi er gott að sjá til sólar
sér í lagi ef mar'er bissí
að grafa lausan gamla jálkinn
gjarnan nefndur Mitsubishi
Næs leið til að ljúka helginni,
smá ævintýri.
En það sem mig langar að vita er:
Hvernig hélduð þið "félagarnir" á ykkur hita..? ;)
Gott er hafa skóflu hjá sér,
svo ei þarf í myrkrinu bíða.
Betra er að vera alsber,
með stúlkukind að ríða.
Hún svo blíð með ljósan lokk,
bíður þér í blíða nótt.
Heirðu vinur, notaðu smokk,
svo ekki fáir sárasótt.
Good Point. Anyways, this was where i met her. You can join for free as well www.redtricircle.com
click here skrifaði 14 mars 2005, kl. 15:00Omg thats right! Please come see me and my friends! ;)
watch moi skrifaði 19 mars 2005, kl. 11:11Come see me if you dare! Check me out on the w ebca m!