Mig dreymdi í nótt. Ekki í frásögur færandi svosem, mig dreymir oft einhverja bölvaða steypu en nú var draumurinn minning. Og súra minningin það!
Hér fyrir nokkrum árum ('98-'9, ekki alveg viss) var Siggi Palli í Iðnskólanum á hönnunarbraut og sýndi ásamt öðrum nemum brautarinnar verk í Ráðhúsi Rykjavíkurborgar. Ég kíkti á sýninguna, minnir að Steina vinkona hafi verið með í för, en þá voru einnig krakkar í Bahá’í samfélaginu að sýna dansatriði hinum megin í sal Ráðhússins.
Þetta voru svona 5-6 týpískir unglingar, klæddir í svartar hettupeysur og svartar buxur, og svo byrjaði lagið. Og þá urðu hlutirnir fyrst súrir.
Total Eclipse of the Heart með Bonnie Tyler. Krakkarnir byrjuðu að baða út öllum skönkum, hlaupandi og hoppandi um gólfið (man ekki hvort að gerfireykur fylgdi) og þegar þeir snéru sér við sást að á bökum hettupeysanna voru skrifuð heiti á hinum og þessum fíkniefnum: "KÓKAÍN!" "HASS!" "SÝRA!" "SPÍTT" "HERÓÍN" etc. Dansinn táknaði semsagt baráttu ungrar stúlku við fíkniefnadjöfulinn (og allt undir alveg dúndrandi Jim Steinman grúvi) og þarna stóð maður alveg gapandi. Mig minnir nú að allt hafi farið vel að lokum og alla tíð síðan sé ég eftir því að hafa verið myndavélarlaus þennan daginn.
Posted by Stebbi at 15.04.04 14:06Ok svo þú sást einhver weirdos í ráðhúsinu fyrir 5-6 árum. Segðu okkur nú frá draumnum!
Freyr skrifaði 15 apríl 2004, kl. 14:26Í margar vikur eftir að ég sá þetta með þér þá átti ég til að öskra á ólíklegustu stöðum: "Hass! Sýra! Kókaín!"...
Fólkinu í biðröðinni í sjoppunni leist ekkert á mig.
Jósi skrifaði 15 apríl 2004, kl. 14:41Vá hvað ég las þetta vitlaust. Disregard first comment. Look! Over there! A three-headed monkey!
Freyr skrifaði 16 apríl 2004, kl. 09:31