Jænxúg!
Hraun spiluðu á Stúdentakjallaranum á föstudagskvöldið og þrátt fyrir að vera bullandi veikur stóð Svavar sig eins og hetja (en það gerðu þeir allir svosem). Svavar fékkst meira að segja til að taka júró-afurðina í ár, þrátt fyrir að vera ekki alveg með textann á hreinu. Myndir frá kvöldinu eru hér.
Á Laugardagskvöldið var fylgst með Júróvisjon heima í stofunni hans Braga ásamt því að grillmatur var snæddur. Keppnin var áhugaverð, Rúslana hin úkraínska kom sá og sigraði en veslings Jónsi var einn og yfirgefinn á sviðinu. En, eins og landsliðið í einhverri boltaíþróttinni, þá gerði hann sitt besta. Það var áberandi ömurlegt að stigagjafaprósessinn tók næstum því jafn langan tíma og keppnin sjálf og ekki bætti úr skák tyrkneska Riverdance skemmtiatriðið.
Lögin voru flest í meðallagi en þó þótti mér Þýskaland, Tyrkland, Kýpur og sigurlagið frá Úkraínu eiga góða spretti. Og Albanía, ekki má gleyma Albaníu.
Gísli Marteinn veslingurinn sýndi það og sannaði að hann á ekkert í Jakob Frímann þegar kemur að hnyttnum kommentum og ég mæli með að RÚV gefist upp á að reyna að skapa vinnu fyrir GM. Alla vega þangað til þeir ráðast í live-action útgáfu af Páli Vilhjálmssyni eftir Guðrúnu Helgadóttur.
Ég sé sé teaser-plakötin fyrir mér: "Gísli Marteinn ER Palli! - Sumar 2006"
Og loksins fær Elín Soffía vinkona kærar kveðjur og hamingjóskir með frumburðinn en hún eignaðist stúlku á hádegi í gær. Jibbíkóla!
PS: Til hamingju með þjóðhátíðardaginn Norðmenn.
Stefán og geimveran E.T. skemmtu sér vel í Júróvisjonpartýi um helgina.
Posted by Stebbi at 17.05.04 17:28