maí 13, 2004

Stompin' at the Næsti Bar

Í gær kíkti ég á Næsta Bar þar sem stompgrúppan Sláttuvélin með þau Jón Geir og Nönnu í fararbroddi lét öllum illum látum og dúndraði hressilegum ryþmaslögurum yfir áheyrendur með áfergju. Meðal ásláttarhljóðfæra sem brúkuð voru má telja lyklaborð, kaffidós, ruslatunnur og áltröppur. Ég skemmti mér konunglega og ég get með sanni sagt að þetta sé bestu stomptónleikar sem ég hef farið á!

Posted by Stebbi at 13.05.04 10:41
Comments
Post a comment









Remember personal info?