Ágætis fjör í gærkveldi á Kaffi Vín þar sem Hraun! spilaði fyrir gesti og gangandi. Allir venjulegu sökudólgarnir voru á staðnum og einnig létu slatti af túristum sjá sig. Drengirnir náðu nýjum hæðum, bæði á sviði frumsamdra laga og tökulaga; frumflutningur á lagi Svavars, Kysstu Tímaglasið heppnaðist ágætlega sem og ofurfönkuð útgáfa drengjanna af Toxic með Britney Spears. Að venju var Rebellinn tekinn en ég held að það þurfi ögn meira gólfpláss fyrir þann eðla dans en Kaffi Vín getur boðið upp á.
Eftir giggið var skrafað og skeggrætt þar til starfsfólk Kaffi Vínar var farið að verða langeygt eftir nætur(morgun)svefni. Þá var gripinn bjór og haldið niður í bæ með dágóðum stoppum inn á milli þegar rekist var á gamla kunningja á Laugaveginum. Þegar komið var niður á Lækjargötu fékk Loftur bassaleikari þá snjöllu hugmynd að pósa fyrir framan Stjórnarráðið og ekki leið á löngu þar til öll hljómsveitin var komin í stellingar. Afraksturinn má sjá fyrir neðan.
Jæja, farinn að hjálpa Svabba að róta í góða veðrinu.
Posted by Stebbi at 06.06.04 14:59Jón Geir fraendi er farinn ad lyta ut eins og Jón Ásgeir.
Eythor skrifaði 6 júní 2004, kl. 18:37