Hættiði að byggja, þið örmu menn sem haldið fyrir mér vöku! Jafnvel áður en dagstjarnan er risin á himni eru þessir jaxlar byrjaðir að hamra, saga, negla, brjóta og bramla rétt eins og þeir fái borgað fyrir það. Sem þeir og fá reyndar.
Sótsvartur andskotinn í neðra hirði allar framkvæmdir sem hylja mitt elskaða útsýni! Pápi vill sjá Faxaflóann, Slippinn og inn til Gunna Þórðar.
Nei hvað sé ég? Þeir halda áfram! Ein hæð í viðbót?
Grrrrrrrrrr
PS: Resident Evil: Apocalypse er arfaléleg kvikmynd.
Posted by Stebbi at 03.02.05 17:00