febrúar 13, 2005

Djásnið mitt, það brennir oss!!

Nú hef ég kannski gert mistök aldarinnar. Ég leyfði henni Hrafnhildi elsku að handleika Ipodinn (soralegt hugtak þar!) og nú er hún orðin ástfangin af tækinu. Í augum hennar ber að líta einhvern Smjagalsglampa og ég á satt að segja von á því að hún vilji ei skilja við tækniundrið og ef ég hamri á málinu muni ég enda kyrktur á botni stöðuvatns rétt eins og hinn óheppni vinur Smjagals, Djagall.

Held samt varla að Ipodinn muni veita henni langlífi. Eða kannski líður tíminn bara svo skelfing hægt meðan maður er að hlusta á Hotel California með William Hung.

krummipod.jpg

Posted by Stebbi at 13.02.05 15:24
Comments

"Mæ pressjösssssshhhhh"

krummi skrifaði 13 febrúar 2005, kl. 15:45

hu the hell r these ppl and where the hell u from???? weirdoooozzzzzzzzzzzzzzzzzzzz

kit kat skrifaði 6 júní 2005, kl. 10:27

Post a comment









Remember personal info?