PS: Hér er smá Valentínusarkveðja, tekin á Sony Ericsson W800 símann.
PPS: Af hverju lítur Gulli Briem, trommari Mezzoforte út eins og Ingibjörg Sólrún?

Veistu hvað Ljóminn er ljómandi góður....
]]>Ég held áfram í ljósmyndanáminu í IR en tek samt bara tvo áfanga í vor, vill hafa smá tima fyrir mig og Heiðu. Í maí skal stefnan tekin á New York þar sem við munum sóla okkur og spássera upp og niður Manhattan í að minnsta kosti viku. Been a long time, NY!
Annað kvöld mun Svavar hinn frábæri halda upp á þrítugsafmælið sitt á Rósenberg með hálfgerðum Singstar-Hraun tónleikum, Guð sé oss næstur! Sem sagt: Eintóm gleði og gaman annað kvöld á Rósenberg upp úr átta.
By the way: hér er þyngdartap mitt síðan um áramót mælt í smjörstykkjum. Jibbí!!!

Eins og Frank Sinatra söng:
I only have eyes for you, my dear

1) Ég er bestur
2) Ég er flottastur
3) Ég er svalastur
4) Ég er fyndnastur
5) Ég er útsmognastur
Enginn er klukkaður hjá mér enda er fólk sem að stundar þetta engu betri en Nígeríuspammarar og ætti að læsa inni.

Títtnefndur Helgi, eftir að hafa verið giftur í rúman sólarhring.

Hér má svo sjá myndir úr Englandsferðinni ógurlegu.
Meiri myndir hér.
]]>
Til hamingju, krúsídúlla :)
]]>
Bragi Skaftason, öðlingur og athafnamaður, er 27 ára í dag. Í því tilefni samdi ég eftirfarandi hæku:
hann á afmæli
til hamingju Bragi minn
hann lengi lifi
Frá Tulsa, Oklahoma til Keflavíkur: 2 dagar
Frá Keflavík í hendurnar á mér: 4 dagar and counting.
Andskotinn í neðsta víti eigi ykkur, DHL!
Megi marflær verpa eggjum í augntóftir ykkar, megið þið týnast á Selfossi og aldrei rata heim, megi fílapenslarnir ykkar tútna og springa á vandræðilegu augnabliki, megi mjólkin ykkar súrna, smjörið úldna og ostapoppið harðna. Megið þið aldrei finna bílastæði við Kringluna og megi parketið ykkar rispast í næsta Júróvisjonpartý!
Megi sótsvartir púkar Azrael rífa ykkur í sundur aftur og aftur til eilífðarnóns!
Hraðþjónusta, my ass!
]]>Fróðleikur dagsins:
Á öndverðri fjórtándu öld fór að bera á flokki vel þjálfaðra málaliða sem voru vel þjálfaðir í drápslistum og seldu þjónustu sína hæstbjóðanda. Þessir kappar gengu undir nafninu Ninjur og eins og allir sem sáu gömlu Ninja þættina vita, er ekkert grín að lenda í klónum á slíkum stríðsmanni.
Í dag eru 9 konur skráðar í þjóðskrá með skírnarnafnið Ninja.
Who you gonna call?
]]>Það er fimmti apríl og ég er stíflaður og hóstandi eins og Doc Holiday í kolanámu. Páfinn og Johnnie Cochran eru farnir yfir móðuna miklu. Vestfirðir eru ansi næs og þar kunna þeir sko að byggja snjókarla. Það er minna en ár í að ég verði þrítugur, kristallinn blikkar örar og örar þessa dagana.
Hérna eru nokkrar myndir frá páskaferðinni vestur.
]]>Á föstudaginn síðasta hitti ég þær Jennifer og Kiran, tvær ágætar stúlkur frá Boston í Massachusets, sem voru hér á landi í helgarfríi. Við mæltum okkur mót á Prikinu þar sem Fjórði Kynþokkafyllsti Maður Íslands (skv. könnun Rásar 2) hitti okkur ásamt Magga. Einnig hékk Jósi með okkur í nokkra stund þar til vinnan kallaði.
Jennifer kom færandi hendi og gaf mér Boston Red Sox hafnaboltahúfu ásamt tveimur pökkum af Twinkies, en það ljúfmeti fæst ekki selt hér á landi (var víst reynt að selja en enginn vildi kaupa). Þar sem Idol-partý var í fúll swing á Prikinu var bjórinn á tilboði og því var drukkið á við tvo Íra þetta kvöld. Seinna færði hersingin sig yfir á Ara í Ögri en stuttu seinna þurfti Gummi að kveðja og þá var röltið tekið um ískaldan miðbæinn og miðja Reykjavíkur skoðuð.
Eftir stutt stopp á fimmtu hæðinni var stefnan tekin á Vegamót sem að er satt að segja orðin af vítisbúllu, alla vega miðað við krádið sem hékk þar þetta kvöld. Upp úr 4 var svo haldið heim á leið og kvöldið kallað gott.
Laugardagskvöldið fór svo í árshátíð Símans sem að þessu sinni var haldin í Haukahúsinu í Hafnarfirði. Í ár var ansi vel haldið á spöðunum og árshátíðin hin glæsilegasta og sýndi mitt eðla fyrirtæki meira segja þann höfðingskap að bjóða upp á rútuferðir í gillið og svo aftur heim (enda ekki vanþörf á, þegar maður leit út um gluggana var dálítið eins og maður væri kominn til tunglsins, slík var auðnin). Í ár var þemað Hollywood og glæsileiki og því til stuðnings voru þjónustustúlkur kvöldsins allar í gervi Marilyn Monroe. Það var allt gott og blessað nema að þegar leið á kvöldið og þreytan byrjaði að segja til sín hjá stelpunum (að þjóna 1400 manns hlýtur að vera lýjandi) þá urðu margar Marilýnurnar ansi sjúskaðar að sjá. Samt var þetta hin besta skemmtan. En af hverju endar Stebbi alltaf á Dubliner eftir árshátíð? Eins og ég þoli ekki þennan stað?!?
Sunnudagurinn var kaldur, kaldari en allt sem kalt getur talist. Kaaaaaaaaaldur. Ég hitti Jennifer og Kiran aftur, lét þær bjóða mér að borða og sýndi þeim Sódómu Reykjavík á DVD að launum.
Nú sit ég hlæjandi eins og brjálæðingur yfir bók Jon Stewart (og meðhjálpara) America (The Book): A Citizen's Guide to Democracy Inaction
Þessi bók er hreinasta snilld, enda útskýrir hún hvers vegna bandarískt lýðræði er besta lýðræði í heimi og hví þjóðir um allan heim berjast um að verða sér úti um skammt af þessu fantagóða lýðræði. Bókin er byggð upp eins og námsbók (það er meira að segja merkimiði innan á spjaldinu, rétt eins og í gaggó) og fyrir utan að hlæja mig vitlausan er ég að læra allan andskotann með því að lesa þessa skruddu, ekki bara um bandarískt stjórnarkerfi heldur líka líka lítt þekktari staðreyndir eins og td. að Thomas Jefferson fílar Halle Berry í ræmur.
Reddið ykkur eintaki, það margborgar sig.
]]>
Sunnudagurinn fór í frábæran bíltúr til Jökulsárlóns með stuttum stoppum hjá Seljalandsfossi & Skógum. Við Bragi, Jósi, Högni og Amy kærastan hans Högna héldum austur á tveimur bílum í blíðskaparveðri. Báðir fossarnir voru í essinu sínu og á Skógum mátti greinilega sjá tvo regnboga í mistrinu. Þegar á Jökulsárlón var komið kíktum ég, Bragi og Jósi út á hálf-freðið lónið (tíhíhí..."hálf-freðið lón!") og storkuðum örlögunum með því að leika okkur í fótbolta ásamt öðru sprelli. Þegar kvölda tók voru grillaðar SS pylsur áður en haldið var heim á leið.
Flottur dagur í alla staði.
]]>